|
|
27.10.2005 20:34:09 / astapa
Hvernig virkar það ef síðan er búin að vera óvirk lengi -
bloggarinn ekkert að blogga - er henni þá eytt??? Af blog.central?
Ég þarf nefnilega að gefa mér tíma í að prenta út dót héðan og
sonnnnna - gvuðmávitahvenær - og er skíthrædd um að þegar ég loks
kem mér í það verði bara allt horfið!! En ég nenni engan veginn að
blogga hérna úr hversdagsgrámanum 
Æi, kannski drita ég bara inn svona trukkafærslum við og við til
að halda þessu partýi gangandi... Og prenta svo út og loka þessu um
jólin - já það er mitt nýja markmið!
Lifðu lengi síða góð!
Ásssssssssssta
»
29.07.2005 10:54:45 / astapa
Þá er ég löööngu komin heim og meira að segja komin hálfa leið
hringinn í kringum landið. Er á Fásk núna, kem í bæinn aftur á
sunnudaginn og þá hendi ég inn síðustu myndunum að utan þannig að
tjékk tjékk it out eftir helgi... Bæbbs, Ásta Mekkín
»
19.07.2005 19:49:41 / astapa
Þá eru tólf tímar í að ég leggi í hann heimleiðis. Er að leggja
lokahönd á niðurpakkningu og herbergisþrif svo er maður bara outta
here!! Talandi um fljótt að líða - fór ég ekki í gær??
Var úti að sækja ruslatunnurnar, póstinn og taka myndir af
húsinu, var í svona tuttugu mínútur og dó næstum úr hita!! Sjitt
þetta er algjört grill - eða gufusoðning frekar!! Greyið hundurinn
flúði inn í kuldann um leið og ég opnaði hurðina en ég henti honum
samviskulaust út aftur. Sagði einhver að það ætti að vera auðvelt
að vera heimskur, illa lyktandi hundur?
Allavega - örugglega í síðasta sinn sem ég skrifa hérna, held ég
nenni ekkert að vera í e-u bloggi þegar ég kem heim. Læt kannski
vita hvernig heimferðin gekk - hversu mikið ég þurfti að borga í
yfirvigt og hvernig mér tókst að fara úr terminali A í E á Logan í
Boston. Það var battr á leiðinni út og þá var ég með eina stóra
tösku og eina litla. Nú er ég með þrjár stórar og eina litla Ég
hef allavega 10 tíma milli véla þannig að ég ætti ekki að missa af
henni eins og á leiðinni út og verði tollinum að góðu ef hann
ætlar að taka mig í smásjárskoðun eins og á leiðinni til
Bahamas!!!! Það mun taka tíma og þeir munu sjá eftir því að hafa
komið sér í þann skít!
Allavega - þakka samfylgdina í sumar, sérstaklega þeim sem
kommentuðu eða skrifuðu í gestabókina eins og þeir áttu að gera!!!

Yfir og út,
Ásta Mekkín
»
18.07.2005 18:08:14 / astapa
Næstsíðasti dagurinn!!
Helvíti næs í gær, fór í Wal Mart og keypti alls konar
Ben&Jerry's og Hagendaz og tók svo feitan sápuóperupakka: lá á
sólbekk úti í garði með tólist og slúðurblað meðan mexíkanski
garðyrkjumaðurinn streðaði allt í kring! Vantaði bara að við ættum
í leynilegu ástarsambandi til að fullkomna myndina. Annars er ég
orðin hvít eins og næpa aftur, aldrei sól og ef það er sól (eins og
núna) er ég inni! Mathis er sofandi og Tami fór með krakkana í
sund.
Á morgun má ég velja milli að fara með þeim til ömmunnar eða
vera hér... Spá í að vera bara hér, pakka og þrífa uppi og svona -
svo fer ég aðfaranótt miðvikudags!! Vá hvað þetta er búið að vera
fljótt að líða!! Verður samt gaman að hitta ykkur öll aftur

Outta here!
Esta
»
16.07.2005 04:39:18 / astapa
Jæja, komin heim eftir afkastamikla verslunarferð, og það er
understatement.
Tók svona flugvallarskutlu héðan og á flugvöllinn í morgunn.
Þaðan fór ég í Mörtuna og djöfulsins snilld! Marta er semsagt
lesta- og strætókerfið í Atlanta, kostar sama og ekki neitt,
fljótlegt og þægilegt, einfalt og fer út um allt. Af hverju notuðum
við þetta ekki Anna Sigrún?? Lúðar.
Byrjaði á að reyna að komast á Moreland Avenue að finna búð sem
ég fann á netinu og heitir Wish. Þurfti að taka tvær lestir og
strætó til að komast þanga og labba svo slatta - og mér tókst að
finna búðina og komast til baka og í Lenox ÁN ÞESS AÐ VILLAST!!! Og
eins og þekkt er orðið VILLIST ÉG ALLTAF, ALLS STAÐAR!! Ég gæti
villst í herberginu mínu, eða bara buxunum mínum, ég er það slæm,
en í dag þvældist ég um án þess að villast nokkuð!! Ég vona að þið
séuð staðin upp og séuð að klappa.
Leist þó ekkert alltof vel á blikuna í strætónum þegar
samferðafólk mitt fór að spyrja hvert ég væri að þvælast og enginn
kannaðist við þetta pleis. Þetta fólk leit reyndar út
fyrir að vera frekar mikið útigangs, með að meðaltali fjórar tennur
og þær ekki fagrar, en ég meina hverjir þekkja göturnar betur en
þeir sem mæla þær allan daginn?
Og þetta Moreland Ave reyndist vera geggjað hipp og kúl!!
Secondhand búðir, hipp og kúl veitingastaðir og kaffihús og búðir,
voða boheimían og indí allt!! Og fólkið heví kúl og skemmtilegt!!
Td endaði ég með símanúmerin hjá afgeiðsluliðinu í Wish og þau með
mitt. Vildu taka mig með út, við spjölluðum heillengi og rugluðum
e-ð. Og ég keypti hálfa búðina (reyndar frekar lítil búð, en sjúkt
flott!!). Var þarna alveg til að ganga fjögur, þá dreif ég mig í
Lenox og keypti Macy's, og það er EKKI lítil búð!!
Var algjörlega búin á því þegar búðirnar lokuðu um 9 og þar
að auki klyfjuð eins og múldýr. Ég stefndi á að ná rútunni
heim frá flugvellinum kl 10 og meðan ég hljóp á lestarstöðina
hugsaði ég bara um að ég yrði að ná sæti í lestinni! Þess vegna
ætlaði ég að vera svaka gáfuð og ekki fara í fyrsta lestarvagninn
eins og allir sem biðu með mér, heldur næsta á eftir. En haldiði
ekki að hann hafi verið fullur af stálpuðum drengjum og ungum
mönnum í e-u júníformi, og ég hugsaði bara "NEEEEEEI, þurfti ég að
lenda á vagni fullum af einhverri lúðrasveit í field-trippi". En
heppnin var með mér og þetta var ekki lúðrasveit heldur skátar, og
þar að auki í suðurríkjunum, þannig að þeir stóðu nottla strax upp
og buðu mér sætin sín!
Þurfti svo að bíða slatta eftir Rob á rútustöðinni, sem var allt
í fínu því ég hitti Kris, rútubílstjóran sem keyrði síðast þegar ég
kom frá Atlanta. Hann var í hernum á Íslandi e-n tíma og langar að
sýna mér Georgíu og bjóða mér í ekta suðurríkjagrillveislu (hvað
þýðir það, grilla svertingja?). Og hann vildi líka endilega bjóða
mér í mat á kaffistofunni, sem einhver samstarfmaður hans hafði
verið svo indæll að elda og koma með vinnuna. En þegar hann var
búin að skófla á disk fyrir mig sagði hann bara "jæja, ég þarf að
fara að vinna" og fór, upp í næstu rútu og brunaði í burtu. Þannig
að ég sat bara á kaffistofunni að éta, leið pínu bjánalega þegar
rútubílstjórarnir komu inn og bara "neih, þú hér.. að borða...
hmm...".
Svo frétti ég það að Macon Telegraph vill taka viðtal við mig en
ætli ég missi nú ekki af því fyrst ég fer heim eftir fjóra daga.
Eða ætli þeir missi ekki af mér réttara sagt 
Bæbb,
Asta,
Juliette, GA
»
13.07.2005 23:10:21 / astapa
Til hamingju, ég náiði að innbyrða milljón kalóríur á einum
degi, ekki einu sinni hinir heimsfrægðu feitustu tvíburar í heimi
hafa afrekað það.
Betty, amma Tamiar sem Anna Sigrún var að passa, er komin á
spítala og nú veit ég ekki hvort upplýsingarnar frá Tami eru
brenglaðar eða actually réttar. Hún sagði mér allavega að amma sín
væri að kasta svo mikið út að hún væri farin að gubba kúk. Gubbandi
upp úr endaþarminum. Sé það ekki alveg gerast, en hver er ég
svosem?? Jón læknir? Neibb. En Tami ekki heldur...
Fór út að hlaupa áðan og lenti í rigningu. Og rafmagnið fór
aftur. Ætlað smella mér í sturtu.
Bæbb,
Ásta Mekkín
»
11.07.2005 16:57:24 / astapa
Ég bloggaði helling á laugardaginn, rakst svo í einhvern takka
og þurrkaði allt út. Ég fór í svo mikla fýlu að ég gerði ekki aðra
tilraun fyrr en núna.
Hér eru nánast daglegir fellibylir, einn fyrir helgi, Dennis í
gær og einn á leiðinni. Og hér í Harlem fer rafmagnið af ef hann
byrjar að blása þannig að það var ekkert rafmagn frá miðnætti í gær
og til tíu í morgunn. Þriðja heims.
Það var svaka hasar í kvöldmatnum í gær, Bo var alveg kreisí og
böggandi systkini sína á fullu auðvitað og með almenna stæla bara.
Tami reyndi e-ð að tjónka við hann en sagði svo "Rob, geturðu
reynda að tala við hann!!", því yfirleitt þorir Bo ekki að ögra
pabba sínum mikið. Þá andvarpaði Rob djúpt (hefði getað startað
öðrum fellibyl) og sagði "oh ég er búin að vera með krakkana alla
helgina, ekki getað farið í tölvuna eða neitt!!". Ég kafnaði næstum
á spagettíinu mínu. Í fyrsta lagi voru Bo og Abney hjá ömmu sinni
alla helgina þannig að bara Mathis var heima. Í örðu lagi kom Rob
heim kl 9 á föstudaginn, þegar Mathis var kominn í rúmið, fór út kl
9 á laugardagsmorguninn og kom heim um miðnætti, þegar Mathis var
lööööngu sofnaður, fór út kl 10 á sunnudagsmorguninn og kom aftur
um hádegi, þegar Mathis var sofandi og var þá einn með hann,
sofandi, þangað til Tami kom heim upp úr eitt. Ekki skrýtið að hann
hafi verið uppgefinn af barnapössun í gærkvöldi!!! Enda er svo ekki
neitt gagn í honum, bara eitt stórt, feitt barnið enn fyrir Tami að
hugsa um. Nema nottla hann þénar..... sem hlýtur að count for
something.....
Ég veit ekki hvernig ég á að koma öllu dótinu mínu heim. Í
fyrsta lagi kemst þetta örugglega ekki í töskurnar mínar (keypti
samt eina risa um daginn...), er yfirivigt og í þriðja lagi komst
dótið mitt hvorki fyrir í mínu herbergi né Gunnars fyrir - og nú á
ég miklu meira!! Ég fór aðeins hamförum í WalMart áðan og keypti td
diska og glös og hnífapör og e-ð.... Þannig að hérmeð lýsi ég eftir
íbúð utan um þetta allt, endilega flexið e-ð fyrir mig Hvernig
er hægt að sleppa þessu, keypti td hnífaparasett, 12 af öllu á 8
dollara, og diskasett á 11. Bargain!!! 
Trúi ekki að ég sé að farað koma heim... Hlakka til að sjá
smettin á ykkur nottla og er komin með alveg ógeð á að hlusta
á á hverjum degi "are you sure you don't want to stay with us for
good? Go to school here?" JÁ ÉG ER FRIGGIN VISS!!! Svo eru þau
alltaf að koma spila út línunni "hvernig geturðu bara farið
frá krökkunum, þau eeeeeeelska þig svoooooooooo". Ég er við
það að segja "mér finnst þau nú bara ekkert svo sérstök og
alveg gjörsamlega óþolandi á stundum", en ég lét mér nægja að
segja "look, I have sisters back home, how could I just leave
them??". Þau fatta það nefnilega ekki alveg að ég á mér líf,
fjölskyldu og vini á Íslandi. En aftur á móti hefði ég alveg viljað
vera nokkrar vikur í viðbót, það er annað mál...
Jæja, best að hætta þessu rugli.
Ásta Mekkín
»
08.07.2005 18:56:23 / astapa
Já og ps: Ef einhver á myndir af nýjustu frænku minni má
viðkomandi endilega senda mér þær!!!
Takkfyrirbless.
»
08.07.2005 18:53:53 / astapa
Er eitthvað betra en sitja í fallegum garði með tjörn og
froskum, í sólskini, tónlist í blómabeðinunum og lesa? Örugglega -
en þetta er allavega býsna ljúft. Mathis fer nú samt að vakna á
hverri mínútu þannig að eins gott að njóta þess. Ég er semsagt ein
heima með hann, Rob í vinnu, Tami í helgarferð og Bo og Abney hjá
ömmu sinni.
En þó hér sé lífið ljúft og umhverfið fagurt kem ég nú samt heim
frekar en flytja hingað. Hefði bara viljað vera hérna aðeins lengur
en tvær vikur í viðbót, finnst þetta heldur skyndileg heimkoma.
Reyndar ekki búið að negla þetta niður en heyrist allt stefna
í heimför 20. júl.
Horfði á School of Rock aftur í nótt. Djöfuls snillingur er Jack
Black. Og djöfuls snillingar eru krakkarni í þessari mynd!! Klárt
mál að mínir krakkar verða þvingaðir til að spila á eitthvað kúl
og vera undrabörn.
Sem minnir mig á þátt sem er hér í sjónvarpinu og fjallar
um geðveika foreldra barna í íþróttum. E-r mömmur sem
öskra á stelpurnar sínar ef þær gera ekki fullkomið handahlaup og
fá brjálæðiskast og garga "hvar er keppnisandinn??" þegar krakkinn
þeirra er að bugast eftir þrælabúðaæfingatarnir. Sick.
Later gaters 
Miss Asta
»
08.07.2005 05:58:28 / astapa
Kl að verða tvö og ég er eitthvað svo tjúnuð að ég get ekki
sofið. Fyndið, klukkan er að verða sex í fyrramálið hjá ykkur, fer
að koma tími á áð rífa sig á lappir. Ég væri einmitt að því núna ef
ég hefði farið í ruslið aftur.
Svaka fjör í kvöld, eða þannig séð, vinkonur Tamiar og pabbi
hennar komu í mat og gista og svo fara þær stöllur í helgarferð í
fyrramálið. Mamma hennar ætlar svo að taka Abney og Bo til sín yfir
helgina þannig að ég verð bara með Mathis vúhú! Annars var hann
ekkert í uppáhaldi í dag, hann gerði sér sérstaka ferð upp í
herbergi til mín til að pissa á gólfið og svo kúkaði hann í
eldhúsinu og ég steig ofan í það, jakk!!! Í sandölum reyndar en
samt!
Svo var ég á "fundi" með Rob áðan. Málið er að visað mitt rennur
út 11. ágúst svo við verðum að breyta fluginu mínu. Þau fara hins
vegar e-ð með mömmu Tamiar 21. ágúst í nokkra daga, svo beint
til Rómar í viku og svo beint til Flórída og verða til að minnsta
kosti 13. ágúst. Þannig að annað hvort verð ég að fara heim 18, 19
eða 20. júlí (Rob gat fengið e-a góða flugdíla þá) eða - og það sem
þau vilja að ég geri - fari ekki neitt!! Þau vilja að ég verði
áfram og ég er orðin frekar þreytt á að ræða þetta mál. Vilja ekki
skilja að jújú, ég á kannski eftir að sakna krakkana þeirra en það
eru líka þúsund manns á Íslandi sem ég myndi sakna miklu meira ef
ég flytti til þeirra!! Og þau eru búin að bjóða mér alls konar,
breyta bílskúrnum í íbúð, koma mér í e-n skóla, finna mér vinnu,
skaffa mér íbúð í Macon ef ég vil ekki vera hjá þeim, senda mig í
"heimsókn" til Íslands í næstu viku og svo kem ég aftur, flytja
Gunnar út til mín, redda honum í skóla/vinnu blablabla..... Svo
hringdi ReeRee um daginn og spurði hvort ég myndi vilja koma til
þeirra og passa krakkana þeirra!! Það er aldeilis!!!
Mig langar samt ekki að flytja hingað akkúrat núna allavega - en
mér finnst samt helvíti snemmt að fara heim 20. júlí!! Það er bara
eftir tvær vikur!!! Frekar extreme valkostir; fara heim einn, tveir
og bingó eða vera hér fram í hið óendanlega. Hlakka nottla til að
hitta familíuna og vinina og kærastann og nýju frænkuna og allt
það, en kommón, ég þarf þá að finna mér einhverja vinnu á Íslandi
fram í september - og svo á ég ennþá eftir að versla
helling!!!! Vann reyndar aðeins í því í dag....
Jæja, þetta var nú aldeilis skemmtilegt blogg. Ætlað farað horfa
á sjónvarpið þangað til ég sofna. Vonandi er Sex and the City.
Góða nótt.
Ásta Mekkín
»
06.07.2005 22:42:41 / astapa
Jíhúúúúú ég er búin að eignast íní míni krúttlinga frænku!!!!!
Stúlkan Ívars&Þóru ákvað sumsé að kíkja í heiminn í dag! TIL
HAMINGJU með hana Ívar og Þóra og amma og afi og allir! Er að ræpa
í mig a la Mathis af spenningi yfir að sjá hana! Fæ myndir á morgun
til að auðvelda biðina aðeins.
Annars hef ég verið beitt þrýstingi undanfarið um að setja inn
nýjar myndir og ákvað ég að láta undan honum. Á að vísu ekkert voða
mikið af nýjum, aðallega af mér að dansa Rollin dansinn og af
Hummernum sem Rob er að spá í að kaupa handa Tami og þau eru með
til reynslu þessa dagana. Fyrir þá sem ekki vita var Rollin dansinn
viðtekin venja í stelpupartýjum hér áður fyrr en þróaðist út í að
ég geri hann og tek myndir til sönnunar í öllum löndum eða
"merkilegum" stöðum sem ég fer til. Á hann á Sínaífjalli í
Egyptalandi (bannað að taka myndir af Súezskurðinum), Petru í
Jórdaníu, Sýrlandi, Beirút í Jórdaníu, klettaborg í Tyrklandi,
Íran, Taj Mahal á Indlandi, flugvellinum í Katmandú í Nepal (close
call!!), Moab og Grand Canyon í Bandaríkjunum og herberginu mínu
(margar útgáfur, þetta er alltaf (of oft) í útvarpinu hérna!!)
hérna í RedNeck-ríki. Síðast tók ég hann hérna rétt áðan á msn með
Lilju. Samhæfðar æfingar milli heimsálfa, þvílíkt undur.
Dagurinn í dag varð ekkert slæmur, með þeim betri bara!! Tami
finnst greinilega verra að vera símadama hjá Rob en mér finnst að
passa börnin hennar þannig að hún fór ekki þangað. Fór hins vegar
með eldri krakkana í búð og sund og skildi Mathis eftir hjá mér,
sem ákvað að sofa helminginn af tímanum, semsé jibbíkóla.
Jæja, ætla að fara að gera magaæfingar og armbeygjur með Bo,
hann bað mig um það því hann er að safna vöðvum.
Bæbb,
Ásta Mekkín stóra frænka 
»
06.07.2005 12:33:22 / astapa
Sit hér og bý mig undir versta dag ever - Tami þarf örugglega að
fara í vinnuna með Rob og vera á símanum í dag, sem þýðir ég með
alla krakkana í allan dag!!!!!!!! oooooooooh það er svo mikill
dauði. Og ARGH hvað ég er pirruð, helvítið hann Mathis klóraði mig
í framan þannig aðég er með tvær rispur á kinninni!!! Og bit
(mannabit, ekki moskítóbit) á bringunni. Flott.
Æi skrifa síðar.
Bæbb.
Ásta
»
05.07.2005 03:34:27 / astapa
Hae ho jibbi jeij og jibbiii jei... I dag er tjodhatidardagur
Bandarikjanna, og tok eg fullan tatt i ad fagna honum, eitthvad sem
eg bjost nu ekkert frekar vid ad myndi gerast. Var meira ad segja
med fanalitada USA armbandid sem Tami gaf mer, en tad var nu meira
svona af virdingu vid hana bara... Annars eru allar budir uppfullar
af tjodhatidarvarningi, fotum, bordskreytingum og ollu
mogulegu ur bandariska fananum. Flott.
Eg er heima hja Sandie (mommu Tamiar, tessari vid vatnid), uppi
i rumi med utsyni yfir vatnid og flugeldana sem er verid ad skjota
yfir tad. Var ad horfa a Sex and the City og nu er eg ad reyna ad
komast ad tvi hvad klukkan er med hjalp netsins. Klukkan a tolvunni
segir tuttugu og eina minutu yfir tvo og eg a erfitt med ad trua
tvi. Vona lika ad tad se ekki satt, ta verd eg treytt a morgun
Og klukkan a sidunni minni virkar ekki.
Annars komum vid hingad i dag i fjorda juli (fourth o'July)
party plus afmaeli hja Tray (litla brodur Tamiar, 29 ara fyrir
einhverjum dogum). Bo sagdi mer um i morgun ad Trey hefdi hringt i
sig og sagt ad eg vaeri hot og hann vaeri skotinn i mer, liklega
mjog mikid meira i gamni en alvoru, en hvad gerir ekki litla
gerpid!! Tegar Trey og Tanya konan hans (giftust eftir ad hafa
verid saman i held eg tvo manudi og eru buin ad vera gift i rumt ar
og verid vid tad ad skilja fyrir tveimur manudum en nu er hun
olett, mikil sapuopera allt i kringum tau), allavega rett adur en
tau fara sitjum vid Tanya hlid vid hlid og ta kemur Bo og hvislar
einhverju ad Tanyu, sem eg heyri, og er einmitt "Trey has a crush
on Asta, he thinks she's hot"!! Og eg bara oooooo fokk og tykist
ekkert hafa heyrt og vona ad hun fari bara ad hlaegja og gera gera
gott ur tessu en hun verdur alveg eins og skinka og tekur svo sama
pakka og eg, tykist ekki hafa nad hvad hann sagdi. Tannig ad Bo
segir henni tad aftur!!!!!!! Og Crystal, troskahefta systir Tamiar
og Treys, segir haaaa, hvad er hann ad segja???? Og Tanya bara
aaahh, ekkert, skiptir engu, eg skildi hann ekki.... Svo halftima
eftir ad tau fara hringir Trey, aaaalveg brjaladur tvi Tanya vard
aaalveg brjalud ut af tessu!!!!!!!! Byst ekki vid ad hann se ad
fara ad syna mer Atlanta eftir tetta, Anna Sigrun, eins og hann var
buinn ad segja....
Jaeja, best ad fara ad sofa, svona ef klukkan er nu half trju
eftir allt saman. Goda nott!
Asta Mekkin
»
03.07.2005 21:43:13 / astapa
...ennþá til að fara út að hlaupa, þannig að best að henda
einhverju hérna inn.
Fór í Macon Mall (mollið í bænum mínum) í gær. Fólkið skammast
sín nú eiginlega fyrir hvað það er lítið, en ég var þarna allan
daginn og fór ekki í nærri allar búðirnar sem ég hefði viljað!!
Stærra en Kringlan sko! Keypti mér laaaaaaangþráða Vans-skó
JEEEEEEEEEESSSSS!!! Og ekki eina, ó nei, og ekki tvenna, heldur
þrenna!!! Ætlaði að kaupa eitt par í viðbót en var ekki til í mínu
númeri Þessi þrjú pör kostuðu minna en eitt par á Íslandi þannig
að ég notaði bara tækifærið og keypti fullt og er mjög kát með
þá 
Komst að því að Tami vann við að labba um bar á nærfötunum og
þiggja fyrir það þjórfé þegar hún var yngri. Svo fór hún að deita
Rob, sem var borgarstjórasonur af fínum ættum svo þetta var
skandall sem varð að grafa og hún varð heimavinnandi húsmóðir eins
og konum sæmir.
Meira síðar.
Ásta, hinn stolti eigandi Vansþríbura
»
02.07.2005 01:14:52 / astapa
Börn meika ekkert sérstaklega mikinn sens:
Bo: Look, that's a humming bird. We got soooooo many of them,
they're everywhere!! They're distinct! (= þarna er hummingbird. Það
er svoooooo mikið af þeim allstaðar, þeir eru úti um allt. Þeir eru
í útrýmingarhættu.)
Abney: Look at my doll! (sjáðu dúkkuna mína!)
Ásta: Oh, I haven't seen that one before, is it new? (er hún
ný?)
Abney: Yeah, we just bought it, yesterday next year. (já við
keyptum hana í gær á næsta ári!)
Bo fór til Savannah með ömmu sinni í morgunn og verður fram á
morgunn. Við hin fórum með hvolpinn til dýralæknis, sem kom svo út
í bíl til að skoða mig því hann hafði aldrei séð Íslending áður og
sagði við Tami "tjah, hvernig lítur Íslendingur eiginlega út?"
Þannig að hún sýndi honum bara. Fórum svo að sundlauginni og héngum
þar þangað til Mathis fékk brjálæðiskast. Þá var ég í
læknisleik/tannlæknisleik/hárgreiðsluleik í tvo klukkutíma. En
meðan það er ekki barbí er ég sátt, algjörlega komin með grænar af
barbí og kickball. Það er tvennt sem ég mun aldrei gera aftur eftir
að ég fer héðan!! Svo er bara búið að vera chill, ég fékk útborgað,
chill á veröndinni með íste, grillaðir burgerar í kvöldmat og nú
ætla ég í sturtu því ég er kannski að fara í bíó og e-ð í kvöld með
e-u liði, strákum með mikið hár og æði trukkalegu kvenfólki.
Þar til næst,
ÁMP
»
Síður: 1 2 3 4
|
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
|